fbpx

Verðskrá

Viltu afhenda vörur og við sjáum um rest, þá verðlagning og allt sem tengist sölubásnum, það virkar svona:

  • Hægt er að velja um 65 vörur eða 130 vörur
  • Bókar bás 80 (græna & bleika kortið) þann dag sem vörurnar koma til okkar
  • Verðlagning hefst þegar röðin kemur að þér, getur verið 1 dagur eða 30 dagar og tekur oftast nokkra daga stundum lengur (við myndum vörur & finnum verð sem tekur oft tíma þar sem við þurfum að vafra um netið)
  • Að því loknu þarf að finna lausann bás í 14-28 daga, fer eftir vörufjölda.
  • Við getum fært básinn & pásað hann, fer allt eftir innihaldi og sölu
  • Ef við pásum básinn þá eru vörurnar enn í netverslun
  • Verð: 19.990.- eða 29.990.- + 18% söluþóknun

Til þess að bóka pakkann þá bókar þú bás 80 (græna og bleika kortið) í 1 dag (þann dag sem þú kemur með vörurnar), við sjáum um að græja rest! Við höfum svo samband alveg sértskalega til þess að láta vita þegar básinn er búinn.

Sérstakleg athygli er vakin á því að engin sérstök tímasetning er á pökkunum. Þú afhendir vörur þann dag sem þú bókaðir, við höfum svo samband þegar við höfum lokið við að týna rest af vörunum niður.

Almenn verðskrá miðað við að þú verðleggur þínar vörur:

Hillubásar & fatabásar.

  • 1 dagur = 630 kr. minnst hægt að panta 10 daga.
  • Með hverjum 10 dögum í leigu fylgir eitt vöruskjal = 65 strikamerki
  • Auka skjal með 30 vörum eða fleiri skráðum kostar 300 kr. en 350 kr. ef vörurnar eru færri á skjalinu. Það er ekki umhverfisvænt að prenta strikamerki sem svo oft fara svo í ruslið.
  • Þú færð herðatré, þjófavarnir, perlur til þess að stærðarmerkja, körfur, afnot af gufugræju
  • Stærri vörur (sem ekki er hægt að hafa á básnum) fara í annaðhvort hillu fyrir stærri muni eða á gólfi.
  • 15% söluþóknun er dregin af heildarsölu í lok leigutímabils
  • Við getum tekið til á básnum fyrir litlar 150 kr. á dag, allt tímabilið eða 300 kr. fyrir stakt skipti.
  • Við getum séð um að fylla á básinn ásamt því að halda básnum snyrtilegum fyrir litlar 250 kr. á dag. Þú færð þá pláss á “lagernum” okkar fyrir vörur í áfyllingu.
  • Þú getur fengið strikamerkin send með póstinum, þá er hægt að gera mest alla vinnuna heima fyrir og kostar þessi leið 300 kr. ATH. Það þarf að láta okkur vita þegar búið er að setja allar vörur inní kerfið svo við getum sent þá af stað.
  • Við getum sett upp básinn fyrir þig, eina sem þarf að gera er að koma vörunum til okkar verðmerktum degi áður en leiga hefst. Kostar þetta 1.500.- Sé pöntuð uppsetning og niðurtekt kostar það aðeins 2.000 kr.-
  • Hægt er að fá okkur til þess að tæma básinn fyrir þig ef þú kemst ekki á tilteknum tíma og kostar það 1500 kr.-